|
|
03.01.2007 11:30:04 / depill
»
15.10.2006 21:44:18 / depill
Góðan
daginn
hér kemur
eitt svolítið töff sem að ég fékk sent á hotmailið mitt, enn
eitt keðjubréfið
Langaði bara
að deila þessu með ykkur
Þetta ætti
sennilega að vera límt á spegilinn á baðinu hjá þér þar
sem þú getur lesið þetta á hverjum degi. Þú gerir þér kannski
ekki grein fyrir því en þetta er 100% satt!

1. Það eru að minnsta kosti tvær manneskjur í
þessum heimi sem þú myndir deyja fyrir.
2. Það eru að minnsta kosti 15 manns í þessum
heimi sem elska þig á einhvern hátt.
3. Eina ástæðan fyrir því að einhver hati þig er,
viðkomandi vill vera eins og þú.
4. Bros frá þér getur fært einhverjum hamingju,
jafnvel þótt viðkomandi líki ekki við þig.
5. Á hverju kvöldi, hugsar EINHVER til þín áður en
viðkomandi fer að sofa
6. Þú ert himinn og jörð hjá einhverjum.
7. Þú ert einstök og sérstök í þessum
heimi
8. Einhver sem þú þekkir ekki, elskar
þig.
9. Jafnvel þegar þú klúðrar málunum, verður
eitthvað gott úr því.
10. Þegar þér finnst heimurinn hafa snúið í þig baki,
líttu aftur á.
11. Mundu alltaf eftir hrósum sem þú færð.Gleymdu
dónalegum hreitum.
Og
hana nú eru ekki allir örlítið jákvæðari núna eftir að hafa lesið
þetta , ég vona það
Jæja
bless í bili
»
06.09.2006 17:03:30 / depill
Jamm og já þá er skólinn bara byrjaður, ég verð nú bara að segja að
ég er ekkert sérstaklega spennt  en maður verður nú samt að
reyna að vera jákvæður  , maður hittir nú alltaf fullt af
skemmtilegu fólki, og jú stundum er nú námsefnið skemmtilegt og
kennarar eru misjafnir þó að þeir séu nú ábyggilega bestu skinn inn
við beinið  .
En nóg af því, við Andrea erum bara búnar að liggja heima síðustu 2
daga í leti og veikindum, það er sko ekkert skemmtileg að liggja
bara heima og gera ekki neitt  allavega á ég alveg rosalega erfitt
með það  .
Vilborg mín kom nú í heimsókn um helgina og var það mjög gaman,
sérstaklega á sunnudaginn þegar að það var horft á Casablanca með
tengdó og Ólunum og Gústa það var náttútulega bara geggjað  og var
það ekki verra að myndin var nú bara nokkuð góð  og ekki klikkað
poppið og kókið  .
En hvað er málið með ljóskuna í Rock Star  , ég meina það, útaf
hverju er hún ekki dottinn út  er ég sú eina með þessa skoðun eða
hvað finnst ykkur um þetta hver haldið þið að vinni  .
En jæja bið að heilsa í bili
Love ya
»
08.08.2006 12:46:40 / depill
Halló, það er kanski komin tími á að setja eitthvað hér inn  .
Það sem að er helst að frétta er að ég átti tvöfalt afmæli um
daginn 2ára edrúafmæli og 25 ára afmæli  og ég bauð auðvitað
útvöldu fólki í heimsókn og komu margir með kökur sjálfir því að
einhverjir voru svo hræddir um að ég myndi ekki baka neitt  , er að
pæla í að gera þetta á hverju ári, segjast ekki nenna að
baka  .
En ég fór á Sigurrós tónleikana á Hálsi og það var alveg geðveikt
æðislegt útsýni yndisleg tónlist og skemmtileg stemming  , síðan
fór ég líka á þá í Ásbyrgi og það var líka geggjað  . Um
síðustu helgi var ég að gæsa Anítu vínkonu mína og það var æðislega
gaman og hún var mjög hlýðinn og gerði allt það fáránlega sem
að við sögðum henni að gera  rosa dugleg  .
En núna er ég bara í viku fríi og barnið byrjað í leikskólanum
aftur svo að ég ætla bara að njóta þess að slaka á og taka kanski
smá til heima hjá mér og auðvitað eru allir velkomnir í kaffi 
Mér þykir vænt um ykkur öll 
Kv: Soffía
»
22.07.2006 13:44:08 / depill
Halló
Jæja um síðustu helgi fór ég í smá útileigu og var það bara mjög
skemmtilegt nema að það var hífandi rok og mígandi
rigning  , en við skemmtum okkur konunglega, fórum á
draugasetrið og borðuðum humar með Boggu og Gústa, fóum til
Reykjavíkur og eyddum smá pening og fórum svo á ball um kvöldið þar
sem að var dansað fram á nótt   .
Annars hefur vikan bara verið róleg hjá mér bara að vinna og sinna
barninu og síðan fékk ég reyndar nýtt rúm og get loksins
sofið 
En ætla að drífa mig út í góða veðrið að sleikja sólinna.
bæjó
»
08.07.2006 12:07:40 / depill
Ákvað að skrifa eitthvað smá hér inn 
Andrea mín er bara komin í sumarfrí, rosa hamingja  , það er
bara pínu vesen með vinnunna svo að ef að þið vitið um einhverja
góða barnapíu þá megið þið endilega láta mig vita  
Næstu helgi er ég, Gísli og Andrea að fara í útileigu með Símanum
og það verður ábyggilega geggjað, hægt að fara í gólf, veiða og á
hestbak og síðan eru auðvitað heitir pottar sem að sumir eiga
ábyggilega eftir að liggja í   , eina vesenið er með tjaldið
maður verður víst að kaupa sér svoleiðis eða bara fá húsbílinn
lánaðan hjá tengdó  . Tjaldið mitt varð nefnilega eftir á
Hróarskeldu og er ábyggilega komið eitthvað upp á hauga  .
En nú liggja Andrea og Ingibjörg hennar Kristínar yfir sjónvarpinu
og ég ætti kanski að fara að gefa þeim eitthvað að borða  .
Þangað til næst
LIFIÐ Í LUKKU EN EKKI Í KRUKKU
KV Soffía Rut
»
28.06.2006 17:48:15 / depill
Halló
Jæja er bara búin að vera vinna alla vikuna en ætla sko að vera í
fríi um helgina og reyna að komast í veiðiferð með nokkrum góðum
vinum  .
En bara svo að allir viti af því þá á hann Jón vinur minn
afmæli í dag og er að pæla í að bjóða honum í smá köku og kaffi,
síðan verður vonandi veisla um helgina  , mér finnst svo rosalega
gaman í veilsum   .
Nú er hann Gísli minn bara farinn til hennar Danmerkur á hana
Hróarskeldu og ég væri svo til í það að vera þar núna það verður
ábyggilega rosalega gaman  , en ég er viss um að ég fer alveg að
fara til útlanda að skemmta mér og versla:lol má sko ekki gleyma
því.
En hef ekki mikið að segja í dag nema til hamingju með afmæli Jón
Karl    .
Bæjó
»
23.06.2006 11:19:32 / depill
Halló fólkið mitt 
Jæja það er svosum ekkert mikið í gangi hjá mér núna er bara að
vinna á fullu svo að maður geti nú borgað reikningana sína, það er
víst betra  .
Í gær byrjaði ég daginn á því að koma barninu í leikskólan og fór
síðan í gluggaþrif til 12 en þá fór ég í hana Síðu mín og var þar
til 4, þá kom hann Jón minn bleiki og náði í mig og skutlaði mér að
ná í Andreu  ,maður getur alltaf stólað á Jón  síðan bauð ég honum
í kaffi og kökur og spjall, síðan kom hún Kristín mín í smá kaffi
og sígó   .
Um kvöldið kom Helga í heimsókn og við horfðum á Buffy með Jóni og
Gísla sínum, og vitið þið hvað ég held bara að þeim hafi þótt Buffy
mín skemmtileg  . En ég er bara í fríi í dag og það á heldur
betur að njóta þess og dekra við sig .
En vitið þið ég held bara að kellann ætli að fara að drífa sig í
bílprófið og það verður nú léttir fyrir marga sem að hafa verið að
snúast í kringum mig og skutla mér útum hvippinn og hvappinn  ,
maður er nú svo heppinn að eiga svo góða að og takk fyrir
allt skutlið útum allt  en jæja ætli maður fari ekki að halda
áfram að dekra við sig  .
sé ykkur síðar
bæjó spæjó
»
14.06.2006 23:56:25 / depill
Jæja ákvað að blogga smá áður en að ég skríð í bólið 
Það er bara búið að vera brjálað að gera hjá mér upp á síðkastið,
er búin að vera að vinna upp í Síðu og að skúra og helduru að maður
sé ekki bara líka komin í taðið 
það er nú meira hvað maður gerir fyrir peninga  . En annars er
ekkert mikið annað búið að gerast hjá mér nema það að það var rosa
fínt á ættarmótinu og einnig mjög blautt, það var mikið borðað,
sungið og djammað og ég spilaði meira að segja með í fótbolta á
laugardeginum og er rétt að losna við strengina núna  . Helga
systir var að byrja að vinna með mér í skúringunum og það er bara
geggjað, þar sem að tvær ljóskur koma saman hlítur að ver
fjör 
Síðan vil ég bara minna alla á að vera í einhverju bleiku á
mánudaginn eða vera með eitthvað bleikt á sér í tilefni að því að
það eru 90 ár síðan að konur fengu kosningarétt. 
Bið að heilsa ykkur í bili 
Soffía
»
09.06.2006 13:01:48 / depill
Jæja sælt veri fólkið
Ég er stödd hérna hjá henni Jóku systir minni  og ákvað að pikka
aðeins inn á bloggið  .
Hún Freydís mín stendur hérna yfir mér til að athuga hvort að ég
muni ekki örugglega að segja að hún sé uppáhalds frænka  mín svo
hér kemur það elsku Freydís mín þú ert uppáhalds frænka mín í
heiminum 
Það er nú lítið að frétta annað en að ég var að þrífa í
Keilusíðunni í dag og djö**** hitinn var að drepa mig  það er
þó einhver huggunn að ég fæ ágætlega borgað fyrir þetta  . Síðan er
ég bara að fara á Þingvelli á ættarmót um helgina með Andreu og
Gísla  , það verður æði, svo að fyrir ykkur fyllibitturnar þá kem
ég ekki í þjónustu á laug og ábyggilega ekki á sunn
heldur  .
En ég heyri í ykkur eftir helgi og þið fáið allt slúðrið úr
útilegunni  .
En ég er svo skörp eikkað að ég er ekki einu sinni búin að finna
tjaldið og ekki búin að taka mig til og kaupa dínu og ég er að fara
eftir smá stund en ég ætti kanski að fara að drífa mig í þetta svo
síja
Sossa sín villisvín
»
06.06.2006 14:35:47 / depill
Jæja sælt veri fólkið 
Í dag byrjaði ég að vinna við að þrífa stigaganga í blokkum sem að
er bara fínt (vel borgað  ), þegar að ég var búin að því fór ég og
heimsótti Kristínu mín og fékk smá eðal kaffi.
Jæja langar bara að deila með ykkur smá ljóði
Ég er alkohólisti
byrðar mínar batt
beiskjan kvíðinn,
hugarangur mitt.
Leysum hnútinn,-
rétt skal vera rétt,
rifjum allt
í fullri vinsemd upp
og gerum gott.
Við getum aftur
glaðst og hlegið dátt.
Við getum lifað
öll í fullri sátt.
Ég er alkohólisti,-
skilur þú mín skrif?
Við skálarbarminn
kann ég ekkert hóf.
Hugarþjálfun
hæfni til þess gaf
að horfa á kalda
staðreynd þessa máls,
og ekkert EF
Sjálfsaginn
er sverð mitt bæði og hlíf,
Því svona mun ég verða
allt mitt líf.
(Ragnar Ingi Aðalsteinsson)
Og þar hafið þið það 
Bæjó
»
02.06.2006 11:03:52 / depill
Jæja hér sit ég ein heima og er að borða skinku horn og drekka DIET
pepsi, (öll í hollustunni sko  ).
Ætla að kíkka í kaffi til hennar Krissu minnar á eftir og gá hvort
að hún hafi ekki eitthvað krafsandi að segja mér og bæ the wei var
að byrja að vinna aftur í Síðu og það er alveg geggjað, það er svo
mikið að skemmtilegu fólki sem að kemur að versla hjá mér og oft
brjálað að gera ótrulegt en satt  og auðvitað er hann Hössi minn
alltaf frábær  .
En ef að draumaprisnsinn minn er að lesa þetta, þú veist hver þú
ert 
koddu þá til mín upp í Síðu í kvöld með fífil á bak við eyrað og á
hvíta hestinum og við skulum ræða frammhaldið. 
En jæja ég elska ykkur allavegana og gangið á Guðs vegum, þeir eru
miklu greiðfærari
Sossa single
»
01.06.2006 10:22:41 / depill
Jæja fólk, í dag vaknaði ég kl 8:30 og kom Andreu minni í
leikskólan, síðan kom hún Kristín mín í smá morgunkaffi og það var
spjallað um ýmislegt  .
Á eftir er grillveisla í leikskólanum og ég held nú að maður skelli
sér og borði á sig gat og leiki aðeins við krakkana fyrst að maður
er nú í fríi, það er nú alltaf skemmtilegt  .
Hef nú eitthvað voða lítið að segja núna svo að ég er að pæla í að
hætta bara þessu tuði.
Síja
Villisvínið
»
31.05.2006 14:02:31 / depill
 Já ætli maður verði ekki að vera með í þessum
bloggheimi  Jæja hérna getið þig forvitnu aðeins fengið
að fylgjast með mér og séð hvað er í gangi hjá mér.
Í dag er ég bara í fríi og er bara búin að vera að dekra við mig
(rosa gaman  ), á eftir ætla ég að labba og ná í dúlluna mína og
gera eitthvað skemmtilegt með henni, í kvöld væri ég svo til í að
spila svo að ef einhverjir sjálfboðaliðar eru endilega hafið
samband.
jæja segjum þetta nóg í dag fólk
over and out
»
|
|